1. Þegar þú kennir mér um þegar þú prumpar. Það er ekkert fyndið. Bara alls ekkert fyndið!
2. Skamma mig fyrir að gelta. Kommon, ég er HUNDUR!
3. Að fara með mig í göngutúr og leyfa mér svo ekki að skoða neitt á leiðinni. Bíddu, fyrir hvern var þessi göngutúr eiginlega?
4. Trikk þar sem ég þarf að halda jafnvægi á mat á trýninu á mér. HÆTTU ÞVÍ!
5. Allar hárgreiðslur sem innihalda slaufur og borða. Svo ertu hissa
á því að ég sé búinn að naga uppáhaldsinniskóna þína þegar þú kemur
heim!!!
6. Að þykjast kasta einhverju sem ég á að sækja. Vúúhúuu, þér tókst
að plata HUND! Þvílíkur sigur fyrir einhvern sem er efstur í
fæðukeðjunni.
7. Fara með mig til dýralæknisins til að láta klippa á og vera svo
obboslega hissa á að ég fríki út í hvert skipti sem við förum þangað
eftir það.
8. Verða pirraður þegar ég þefa af klofinu á gestum. Þú verður að
fyrirgefa, en þetta handabandsdót ferst mér bara ekkert sérlega vel úr
"hendi"!
9. Hundapeysur. HALLÓ! Hefurðu aldrei tekið eftir feldinum á mér???
10. Þegar þú þykist yfir þig hneyksluð á að ég sleiki mig. Viðurkenndu það bara, þetta er ekkert nema öfund!